Eins og bubbi myndi segja það. Við fórum að horfa á RedBullKnockOut í dag, sem er mótorkrosskeppni haldin á Schevening ströndinni í Den Hag. Ég byrjaði á því í morgun að hjóla til Jóns og Jóhönnu sem er um klst hjólreið. Þar var tekið á móti mér með enskum morgunverði, baukon og pullur. Svo fórum við á ströndina, það var sól, heiðskýrt en skítakuldi og gjörsamlega pakkað á ströndinni. Einhverjar þúsundir að horfa á þetta reis. Við náðum okkur ágætis plássi til að horfa og svo á slaginu tvö var ræst. Þetta var alveg svakalegt, 500 hjól og ökumenn með allt í botni meðfram sjólínu strandarinnar, sumir voru að fara vel yfir 200km/klst. Tekin var beygja eftir að þeir keyrðu undir casinoið og leiðin til baka var ekki jafn fljótfarin, með beygjum, pöllum vúpsum og úpsum. Það myndaðist mikill pyttur ökumanna sem vöru fastir hingað og þangað og á meðan á þessu stóð var þyrla sem elti þá sem voru fyrstir. Fyrsta móto eins og það er kallað tók um klst, þá voru um 50 manns dottnir út með biluð hjól eða brotin bein. Þá kom brunandi inn á ströndina skriðdreki, þvílíkt flykki. Hann keyrði beint niður í fjöruborðið og á eftir honum vélsleði og löggubíll, svo var þyrlan komin líka. Það sem gerðist var að þegar flóðiðbylgjan kom hingað um dagin dróg hún upp á land einhverjar fosfórsprengjur og hefur herinn verið þarna að eyða þeim. Hugsanlega sást til einnar þarna og var þyrlan notuð til að ýfa sjóinn frá henni. En svo tók skriðdrekinn aftur á rás, á botngjöf fram og til baka. Þá hófst næsta móto, nú með 250 manns þegar það kláraðist fórum við heim til Jóns og horfðum á restina í beinni útsendingu þar sem við vorum kaldir inn að beini þrátt fyrir að vera vel klæddir. Alveg magnað hvað hollendingurinn getur verið lítið klæddur og með mikið gel í hárinu án þess að láta á sjá.
En þetta var snilldar dagur í alla staði. !!!Myndir hér!!!
En þetta var snilldar dagur í alla staði. !!!Myndir hér!!!
3 comments:
Vá það hefði verið gaman að sjá þetta :)
Við sjáumst næstu helgi :D
Kv
Hanna Steinunn
nauh .... þetta var öruglega GEÐBILUN að horfa á þetta X-D og hversu kúl er það að horfa a skriðdreka og dude a velstleða taka sprengju af motocoss strondini :PX-D IT IS MENTAL INSANEN IN THE NUTBRANE
Aron :D
Akkurat tad sem mer fannst :)
Post a Comment