Sunday, July 13, 2008

FS UK

Já, gleymdi ad lata vita ad eg er ad keppa a silverstone um helgina og tad gengur mjog vel.

Tjekkid a DUTRacing fyrir frettir.

saelar!

Sunday, July 6, 2008

duyy Holland


Þetta mun vera hinsta færslan frá Hollandi. Seinasta prófið var í seinustu viku og þar með batt ég enda á þetta ævintýri. 
Næst á dagskrá er englands ferð með DUTRacing, þar er gamall truckin draumur að rætast þar sem ég og Elín Keyrum stórann MAN trailer trukk héðan og til Silverstone. Við erum búin að versla okkur almennilegar trukkahúfur og hlýraboli. Stefnir í gott ferðalag. Við komum svo hingað til Delft aftur mánudaginn 14 júli og tvímennum svo á súkkinni heim 15 júli. Með stoppum hér og þar á norðurlöndunum eigum við svo miða með norrænu þann 29 júli frá Bergen í noregi. 
Ættum því að koma heim á klakann 31 júli til að fara beint í útilegu verslunarmannarhelgar.

En restin af dótinu okkar fer heim í dag, þam talvan sem ég hef skrifað á í vetur. 

Veriði sæl og Njótið sumarsins.